Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Móðurfélag Krónunnar, Festi, og systurfélögin ELKO, Lyfja og Bakkinn hlutu einnig viðurkenninguna.
Hjá Krónunni leggjum við ríka áherslu á að skapa vinnustað þar sem öll hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá þann árangur sem náðst hefur á undanförnum árum. Hlutfall kvenna meðal verslunarstjóra Krónunnar hefur aukist úr 28% árið 2022 í 37% árið 2026. Starf verslunarstjóra er krefjandi og var lengi vel að mestu í höndum karla. Konur hafa sannarlega bæði metnaðinn, viljann og getuna til að sinna starfinu. Okkar hlutverk sem vinnustaðar er að tryggja að vinnulag og menning standi ekki í vegi fyrir þeim, heldur opni leiðir fyrir fólk til að vaxa og þróast í starfi.
Viðurkenning Jafnvægisvogarinnar er mikilvæg hvatning fyrir okkur til að halda áfram á sömu braut og gera enn betur þegar kemur að jafnrétti og jöfnum tækifærum innan Krónunnar.
Við þökkum FKA fyrir viðurkenninguna og ekki síst öllu okkar frábæra starfsfólki sem á stóran þátt í þessum árangri.

8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.
2. október 2026
Íslensk veisla hefst í dag í Krónunni Lindum, Granda, Skeifunni og Akrabraut.
24. september 2026
Vörurnar eru seldar undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Gestus og Grön Balance.
23. september 2026
Fyrirkomulagið tekur gildi í dag, á bíllausa deginum.