Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
23. september 2026
Nú verður enn auðveldara að nýta Hopp-deilibíla í innkaupaferðinni. Sérstök svæði, svokallaðar Hopp-eyjar, hafa verið skilgreind við valdar Krónuverslanir á höfuðborgarsvæðinu og gera viðskiptavinum kleift að ljúka Hopp-ferðum sínum við verslunina eða halda bílnum fráteknum á meðan verslað er. Hoppeyjurnar taka gildi á Bíllausum degi, sem er haldinn ár hvert til að hvetja til fjölbreyttari ferðamáta og minna á að það þarf ekki alltaf einkabíl til að komast leiðar sinnar.
Hoppeyjurnar birtast sem blá svæði í Hopp-appinu og eru nú við Krónuna á Bíldshöfða, í Árbæ, Jafnaseli, Lindum, Flatahrauni, Hvaleyrarbraut og Norðurhellu. Eyjurnar hafa einnig verið í boði við Krónuna á Granda og við Hallveigarstíg. Með samstarfinu viljum við í Krónunni gera þeim sem kjósa að ferðast án eigin bíls auðveldara að sinna daglegum innkaupum, hvort sem ferðin er farin alla leið með Hopp eða hluta af ferðinni.
Hopp býður upp á deilibíla og rafhlaupahjól sem hægt er að leigja í gegnum appið. Á höfuðborgarsvæðinu hafa notendur aðgang að yfir 100 rafknúnum deilibílum og um 3.500 rafhlaupahjólum.
15. september 2026
Krónan og LBHÍ hafa gert með sér samning til þriggja ára.
14. september 2026
Nú geta viðskiptavinir Krónunnar fengið hjálp við að leita í vöruúrvalinu okkar, fengið tillögur að vörum, yfirlit yfir verð og búið til tillögur að innkaupalista eftir þörfum, í Claude gervigreindarforritinu.
7. september 2026
Um 400 þátttakendur brunuðu um Öskjuhlíðina síðasta laugardag á Krónuhjólamóti Hjólaskólans og Tinds.