
20. desember 2023
600 fjölskyldur fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin
Krónan hefur afhent hjálparsamtökum 600 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Þá bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 6 milljónum króna og jafnaði Krónan sömu upphæð á móti. Því söfnuðust alls um 12 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar.
„Markmið okkar fyrir þessi jól var að styrkja 500 fjölskyldur en í fyrra hlutu 450 fjölskyldur stuðning í formi matarúthlutana," segir Guðrún, framkvæmdastjóri Krónunnar. „Í samvinnu við okkar kæru viðskiptavini náðum við þessu markmiði og gott betur en 600 fjölskyldur fá matarúthlutun í ár vegna söfnunarinnar. Þetta er í fjórða sinn sem við bjóðum viðskiptavinum að láta gott af sér leiða á aðventunni og hefur ávallt verið tekið vel í þetta framtak. Jólamánuðurinn getur verið erfiður á mörgum heimilum og því er þetta samvinnuverkefni okkur afar mikilvægt.“
Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinum bauðst að styrkja fyrir 500 krónur eða meira og Krónan jafnaði sömu upphæð á móti. Upphæðin rennur beint til hjálparsamtaka í nærsamfélagi sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo að styrkþegar geti sjálfir valið í sína matarkörfu fyrir hátíðirnar.
Góðgerðarsamtökin sem hljóta styrki í formi gjafakorta frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Selfosskirkja, Sjóðurinn góði í Árnessýslu, Stórólfshvolskirkja, Rauðikross Víkursvæðis, Styrktarsjóður Landakirkju, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Kópavogi, Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.
22. apríl 2025
Við erum að fara í endurbætur á Krónunni Vallakór og verður versluninni lokað á meðan, frá og með fimmtudegi 24. apríl.
4. apríl 2025
Hið vinsæla og margverðlaunaða hárvörumerki Monday Haircare er nú loksins fáanlegt á Íslandi en Krónan er að hefja sölu á merkinu.
3. apríl 2025
Í tilefni af HönnunarMars höfum við opnað sýninguna Fruitful Futures ii í Krónunni Granda.
1. apríl 2025
Bílalúga bætist við þær þjónustulausnir sem Krónan býður upp á því í dag opnar formlega Krónulúgan við verslun Krónunnar í Garðabæ.