Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
24. september 2026
Krónan hefur fryst almennt söluverð á 647 vörum undir eigin vörumerkjum og öðrum verðföstum vörumerkjum. Verð þessara vara hækkar ekki frá 24. september og til og með 31. desember 2026.
Frystingin nær til fjölbreytts úrvals vara sem tilheyra daglegum innkaupum heimilanna. Þar má meðal annars finna kjúkling, hakk, beikon, brauð, kartöflur, pasta, haframjöl, kaffi og lífrænar vörur. Einnig eru í frystingunni ýmsar nauðsynjavörur fyrir heimilin, svo sem eldhúsrúllur, salernispappír, uppþvotta- og þvottaefni, hreinlætisvörur og gæludýrafóður. Vörurnar eru seldar undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Gestus og Grön Balance. Vörur í kjötborði Krónunnar falla ekki undir frystinguna.
Frystingin þýðir að verð á vörunum 647 hækkar ekki út árið. Ef svigrúm skapast til verðlækkana á tímabilinu verður þeim ávinningi skilað áfram til viðskiptavina. „Við viljum sýna ábyrgð í verki og leggja okkar af mörkum til að styðja við heimilin á þessum tímum. Með því að frysta verð á fjölbreyttum vörum sem fólk kaupir reglulega viljum við skapa meiri fyrirsjáanleika og stöðugleika í innkaupum heimilanna,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Frystingin tekur gildi 24. september 2026 og gildir til og með 31. desember 2026.
3. nóvember 2026
Nú geta fyrirtæki pantað gjafakassa fyrir sitt starfsfólk, viðskiptavini eða samstarfsaðila.
25. október 2026
Skelfikerið, graskersútskurðarkeppni Krónunnar, var haldið í þriðja sinn um helgina og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Keppendur sýndu mikla hugmyndaauðgi og metnað og úr varð glæsileg graskerssýning í Krónunni Lindum.
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.