Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
21. október 2025
Saman söfnuðu Krónan og viðskiptavinir alls 12 milljónum króna í neyðarsöfnun fyrir börn á Gaza í samstarfi við UNICEF Iceland.
Viðskiptavinum Krónunnar bauðst að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín í verslunum Krónunnar og jafnaði Krónan hvert framlag, krónu á móti krónu. Fjármagnið mun renna óskert til neyðaraðstoðar á Gaza þar sem UNICEF vinnur að því veita íbúum landsins aðstoð, með sérstaka áherslu á börn. Söfnunin var í gangi dagana 9. - 19. október💙
Guðrún Aðalsteinsdottir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir að viðtökur viðskiptavina hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum. „Viðbrögðin fóru langt fram úr væntingum og sýna hversu miklu máli samstaða skiptir þegar neyðarástand ríkir. Við erum gífurlega þakklát þeim viðskiptavinum sem tóku þátt því saman náum við árangri.“ segir Guðrún.
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir að framlag viðskiptavina sé mannúðarstarfi UNICEF afar mikilvægt þar sem mikil neyð ríki á svæðinu. „Fram undan er stærsta mannúðaraðgerð sögunnar þar sem UNICEF leggur nótt við nýtan dag að tryggja börnum svæðisins langþráða næringu, hreint vatn, lyf, hlý föt og skjól. Þá bíður okkar einnig að koma skólagöngu þeirra aftur af stað eftir tveggja ára hlé og veita sálfélagslegan stuðning. Þetta kostar mikið fjármagn og því ómetanlegt að njóta þess vogarafls sem Krónan og viðskiptavinir hennar hafa lagt til verkefnisins. Saman erum við sterkari,“ segir Birna.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Birnu Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi og Guðmund Inga Gunnarsson, fjáröflunarstjóra UNICEF á Íslandi.
18. júní 2026
Tæplega 100 krakkar á aldrinum 2-12 ára stóðu sig frábærlega á Krónuhjólamótinu um helgina.
18. júní 2026
Tæplega 90 þátttakendur gerðu sitt allra besta á Krónuhjólamótinu um helgina.
15. júní 2026
Krónan í Lindum er opin á ný eftir viðamiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir frá því í apríl. Lindir er stærsta verslun Krónunnar, rúmlega 3.200 fermetrar að stærð.