19. september 2024
Klikkað fjör á Krónuhjólamótinu!
Það var mikið fjör á sunnudaginn þegar Hjólamót Krónunnar fór fram í sjötta skiptið í samvinnu við hjólafélagið Tind og Hjólaskólann. Um 260 kátir krakkar á aldrinum tveggja til tólf ára spændu um brautirnar í Öskjuhlíðinni og stóðu sig ótrúlega vel.
Yngstu hjólakrúttin voru frá tveggja ára aldri og kepptu á sparkhjólum, en 6-12 ára hjóluðu tveggja til þriggja kílómetra langa hringi í Öskjuhlíðinni, og voru hringirnir mismargir eftir aldurshópum. Metþáttaka var í mótið og sáu BMX brós um að halda uppi stemningu á milli keppna. Allir þátttakendur voru leystir út með medalíum og vinningum frá Krónunni en einnig var Krónuhjólið á sínum stað með nóg af ferskum ávöxtum fyrir alla.
Þakkir til Hjólaskólans og Tinds ásamt allra sem mættu og tóku þátt í þessum skemmtilega degi með okkur. Við sjáumst að ári!