Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
17. september 2026
Plastlaus september er góð vitundarvakning til áminningar um að skoða daglegar venjur og velta fyrir sér hvernig við getum dregið úr óþarfa plastnotkun. Plaustlaus september þýðir ekki að sleppa eigi öllu plasti, heldur að vera meðvitaðari í neyslu; allt frá innkaupum og matreiðslu, til geymslu matvæla og flokkunar.
Hér eru nokkur einföld ráð til að draga úr plasti í daglegu lífi.
Veldu ópakkað þegar það hentar
Á Bændamarkaði Krónunnar leggjum við áherslu á ferskt og ópakkað íslenskt grænmeti frá íslenskum garðyrkjubændum. Með því að velja ópakkaðar vörur þegar það hentar getur þú dregið úr umbúðanotkun og jafnframt stutt við íslenska framleiðslu. Bændamarkaðurinn stendur yfir allar helgar í september.
Veldu umbúðir með FENÚR-merkingum
Þegar þú velur pakkaðar vörur skaltu skoða merkingar á umbúðunum. FENÚR-merkingar hjálpa neytendum að átta sig á hvernig flokka á umbúðir og styðja við rétta flokkun.
Hugsaðu um plastið í eldhúsinu
Margnota box, innkaupapokar og ílát geta komið í stað einnota lausna í mörgum aðstæðum. Einnig er gott að hafa í huga að plastumbúðir geta stundum lengt geymsluþol matvæla og dregið úr matarsóun. Markmiðið er því að velja skynsamlega eftir aðstæðum og hugsa um heildaráhrifin.
Gangi ykkur vel í plastlausum september!
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.
7. október 2026
Þann 21. október verðum við í Krónunni Skeifunni frá kl. 14:00–18:00 og bjóðum upp á persónulega aðstoð fyrir alla sem vilja læra betur á appið.
2. október 2026
Íslensk veisla hefst í dag í Krónunni Lindum, Granda, Skeifunni og Akrabraut.