Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
6. nóvember 2026
Krónan hefur nú veitt samfélagsstyrki um allt land en alls hlutu 17 verkefni styrk fyrir fjölbreytt verkefni. Samfélagsstyrkir Krónunnar snúast um að styðja við verkefni sem geta haft raunveruleg og jákvæð áhrif á samfélögin í nærumhverfi Krónunnar.
Líkt og síðustu ár er áherslan á lýðheilsu, hreyfingu, útiveru og umhverfisfræðslu. Meðal styrkþega eru verkefni sem snúa að útikennslu, íþróttastarfi og reiðnámskeiði fyrir börn með fatlanir. Fjögur Bambahús bætast einnig við í ár, en þau skapa börnum tækifæri til að læra um ræktun, hringrásarhagkerfið og uppruna matvæla með því að taka sjálf þátt.
Við erum stolt af því að geta stutt við fólkið sem sér tækifærin í sínu nærsamfélagi og lætur góðar hugmyndir verða að veruleika. Við óskum styrkþegum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með verkefnunum vaxa og dafna!
Verkefnin sem hlutu styrk í ár:
Höfuðborgarsvæðið
Íþróttafélagið Leiknir í Breiðholti, fyrir uppbyggingu á borðtennisdeild félagsins
Heilsuleikskólinn Urðarhóll í Kópavogi, fyrir þreföldu Bambahúsi
Leikskólinn Hlíðarendi í Hafnarfirði, fyrir þreföldu Bambahúsi
Leikskólinn Hæðarból í Garðabæ, fyrir þreföldu Bambahúsi
Leikskólinn Jörfi í Reykjavík, fyrir þreföldu Bambahúsi
Suðurnes
Háaleitisskóli á Ásbrú í Reykjanesbæ, fyrir uppbyggingu á bogfimikennslu
Suðurland
Íþróttafélagið Skyttur á Hvolsvelli, fyrir píludeild fyrir börn
Íþróttafélagið ÍBV í Vestmannaeyjum, fyrir eflingu íþróttastarfs yngri flokka
Grunnskólinn í Þorlákshöfn, fyrir heilsueflandi námsumhverfi
Voices of Vík, fyrir menningarviðburði
Foreldrafélag Leikskólans Sjónarhóls á Höfn í Hornafirði, fyrir uppbyggingu á útileiksvæðinu Hrossó
Frístundaheimili Árborgar á Selfossi, fyrir kaup á plokkstöngum
Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi, fyrir reiðnámskeið fyrir börn með fatlanir
Vesturland
Hollvinasamtök Borgarness, fyrir stækkun frisbígolfvallar
Norðurland
Giljaskóli á Akureyri, fyrir uppbyggingu á útikennslusvæði
Skautasamband Íslands, fyrir kaup á búnaði fyrir skautahlaup
Austurland
Siglingaklúbbur Austurlands vegna Austanbyrs, verkefnis á Reyðarfirði sem stuðlar að öruggu aðgengi barna í sjósporti
25. október 2026
Skelfikerið, graskersútskurðarkeppni Krónunnar, var haldið í þriðja sinn um helgina og hefur þátttakan aldrei verið meiri. Keppendur sýndu mikla hugmyndaauðgi og metnað og úr varð glæsileg graskerssýning í Krónunni Lindum.
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.
7. október 2026
Þann 21. október verðum við í Krónunni Skeifunni frá kl. 14:00–18:00 og bjóðum upp á persónulega aðstoð fyrir alla sem vilja læra betur á appið.