31. júlí 2024
Heillakarfan er ný lausn í Krónuappinu þar sem viðskiptavinur safnar stigum í hverri innkaupaferð. Ákveðnar vörur gefa þér stig sem svo hjálpa þér að ná markmiði mánaðarins. Flokkarnir sem gefa stig eru valdir út frá heildrænni sýn, en horft er á þætti eins og lýðheilsu, umhverfi, endurnýtingu, umbúðir, lífrænar merkingar og vottanir. Flokkar sem við teljum vera þér og umhverfinu til heilla.
Heillakarfan hjálpar þér að skapa jákvæðar venjur í daglegum innkaupum og er hluti af framtíðarsýn Krónunnar um að gera heilsusamlegan og sjálfbæran lífstíl að daglegum venjum allra.
Lestu meira hér: https://kronan.is/heillakarfan
23. október 2024
Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), var haldin fimmtudaginn 10. október og hlutu 130 fyrirtæki viðurkenningu fyrir að hafa náð markmiði um jöfnun kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækisins.
23. október 2024
40 keppendur skiluðu inn glæsilegum graskerum og vöktu þau gríðarlega lukku meðal viðskiptavina Krónunnar um helgina.
1. október 2024
Matarbúrið verður í stærstu verslunum Krónunnar næstu sex vikurnar.
19. september 2024
Krónuhjólamótið var nú haldið í sjötta sinn með Tind og Hjólaskólanum.