Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.
Fanney hóf störf árið 1986 í matvöruversluninni í JL-húsinu við Hringbraut í Reykjavík. Á þessum 40 árum hefur ýmislegt breyst, ekki síst nöfnin á verslununum! Verslunin í JL-húsinu varð síðar Nóatún og að lokum Krónan, sem í dag er rekin af Festi. Fanney hefur fylgt þessum breytingum eftir og safnað ómetanlegri reynslu og þekkingu í gegnum árin. Eitt hefur þó haldist óbreytt, ástríða hennar fyrir faginu!
Fanney er kaupmaður af lífi og sál og algjör snillingur þegar kemur að ávöxtum og grænmeti. Þekking hennar nær þó svo sannarlega lengra en það, enda þekkir hún verslunarrekstur út og inn. Hún hefur jafnframt miðlað dýrmætri þekkingu sinni til ótal samstarfsfélaga í gegnum árin.
Hjá Krónunni starfa um 1.200 einstaklingar frá 49 þjóðernum. Fjölbreyttur bakgrunnur, reynsla og þekking starfsfólksins er einn af okkar mikilvægustu styrkleikum og Fanney er svo sannarlega frábært dæmi um það.
Við erum ótrúlega stolt af því að hafa Fanneyju í okkar röðum og þökkum henni innilega fyrir 40 ára farsælt samstarf, einstakan metnað og ómetanlegt framlag. Til hamingju með 40 árin, elsku Fanney!
Í Morgunblaðinu má lesa skemmtilegt viðtal við Fanneyju þar sem hún rifjar upp starfsferilinn og segir frá ástríðu sinni fyrir faginu.
Myndir: Sigurður Bogi / Morgunblaðið

24. september 2026
Vörurnar eru seldar undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Gestus og Grön Balance.
23. september 2026
Fyrirkomulagið tekur gildi í dag, á bíllausa deginum.
17. september 2026
Plaustlaus september þýðir ekki að sleppa eigi öllu plasti, heldur að vera meðvitaðari í neyslu; allt frá innkaupum og matreiðslu, til geymslu matvæla og flokkunar.
15. september 2026
Krónan og LBHÍ hafa gert með sér samning til þriggja ára.