Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
29. apríl 2026
Krónan hlaut í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Krónan er eina fyrirtækið sem hlýtur verðlaunin í annað sinn, en hið fyrra var árið 2018.
Í rökstuðningi fyrir valinu á Krónunni lofar dómnefndin úthaldið sem verslanakeðjan hafi sýnt í umhverfismálum, allt frá því Krónan setti sér það markmið að vera í fararbroddi við rekstur sjálfbærari matvöruverslana fyrir um áratug síðan. Nýleg Svansendurvottun allra verslana Krónunnar, sýni að hvergi hafi verið hvikað af þeirri leið, en í dag er Krónan eina verslanakeðjan á Norðurlöndunum sem getur státað af Svansvottun allra sinna verslana. Metnað Krónunnar í umhverfismálum segir dómnefndin birtast á ýmsan hátt, til að mynda með stuðningi við nýjar og skapandi leiðir til að draga úr myndun úrgangs, stuðningi við minni innlenda matvælaframleiðendur og jafnframt hafi verslunarkeðjan markvisst dregið úr kolefnisspori sínu, m.a. með rafbílavæðingu og útskiptingu kælimiðla svo fátt eitt sé talið.
Áhersluna sem Krónan leggi á að gera umhverfisþáttinn sýnilegan og þar með aðgengilegan neytendum beri einnig að þakka og þar með þau jákvæðu áhrif sem verslanakeðjan hafi á daglegt líf fjölda landsmanna.
Við erum djúpt snortin og afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu og þökkum bæði dómnefnd og umhverfis, orku- og lofstlagsráðuneytinu kærlega fyrir okkur.
20. október 2026
Krónan hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA árið 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.
8. október 2026
Á dögunum fögnuðum við einstaklega merkum áfanga þegar Fanney Kim Du fagnaði 40 ára starfsafmæli sínu hjá Krónunni.
7. október 2026
Þann 21. október verðum við í Krónunni Skeifunni frá kl. 14:00–18:00 og bjóðum upp á persónulega aðstoð fyrir alla sem vilja læra betur á appið.
2. október 2026
Íslensk veisla hefst í dag í Krónunni Lindum, Granda, Skeifunni og Akrabraut.