© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
30. apríl 2026
Krónan hefur hafið þjónustu við íbúa á Ísafirði og í nærliggjandi sveitarfélögum í gegnum Snjallverslun. Frá og með 30. apríl geta íbúar á svæðinu pantað vörur og sótt þær á afhendingarstað á Ísafirði. Fyrstu sendingar munu berast miðvikudaginn 6. maí. Pantanir eru teknar saman í verslun Krónunnar á Akranesi einu sinni í viku og fluttar á N1 á Ísafirði, þar sem þær verða afhentar.
Markmið þjónustunnar er að bæta aðgengi íbúa að dagvöru á samkeppnishæfu verði, auka úrval og styrkja þjónustu við landsbyggðina. Í fyrstu verður keyrt með sendingar alla miðvikudaga en verði eftirspurn mikil verður tíðnin endurskoðuð.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir þetta mikilvægt skref í að efla þjónustu fyrirtækisins utan höfuðborgarsvæðisins og á svæðum sem eru ekki í alfaraleið. Íbúar og fyrirtæki á Ísafirði og í nágrannabyggðum hafi lengi óskað eftir þessari þjónustu og sé ánægjulegt að geta svarað því kalli.
„Með því að nýta verslanir okkar á landsbyggðinni og dreifikerfi Krónunnar getum við þjónustað fleiri svæði með Snjallversluninni. Vegalengdin frá Akranesi til Ísafjarðar er um 370 kílómetrar aðra leiðina og er þetta lengsta leið sem Krónan fer með sendingar. Íbúum á Flateyri, Suðureyri, Súðavík, Bolungarvík og Þingeyri er að sjálfsögðu einnig velkomið að nýta sér þjónustuna og sækja pantanir á Ísafjörð. Hver veit nema við bætum við fleiri afhendingarstöðum þegar reynsla verður komin á verkefnið,“ segir Guðrún.
Snjallverslun Krónunnar nær nú til um 360 þúsund íbúa um land allt, eða nær 95% landsmanna. Þar á meðal eru um 100 þúsund manns búsettir á landsbyggðinni og um 5 þúsund á Vestfjörðum.
21. apríl 2026
Skólahreysti og Krónan hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára.
8. apríl 2026
Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) og Krónan stóðu fyrir fyrsta Stubbamótinu sem fram fór á skíðasvæði Siglufjarðar í Skarðsdal þann 28. febrúar.
1. apríl 2026
Í tilefni þess verður rýmingarsala 7.-8. apríl.
19. mars 2026
Ert þú (eða þekkir þú einhvern) af eldri kynslóðinni og vilt læra að nýta sér Krónuappið?