Fallback alt

Svansvottun

Allar verslanir Krónunnar hafa hlotið Svansvottun. Kröfur Svansins fyrir dagvöruverslanir ná yfir umhverfisþætti í rekstri verslana, svo sem matarsóun og flokkun úrgangs, orkunotkun, og framboð lífrænna og umhverfisvottaðra vara.

Í lok árs 2019 hlaut Krónan Svansvottun á verslunum sínum við Akrabraut og Rofabæ og voru það fyrstu verslanirnar á Íslandi sem hlotið hafa Svansvottun. Ári síðar var loka markmiðinu náð með vottun allrar keðjunnar. Þetta er því stórt skref sem varðar þá samfélagslegu ábyrgð sem Krónan leggur áherslu á og stendur fyrir. Svansvottun er ekki eitthvað sem þú færð bara einu sinni, heldur þarf að halda viðmiðum til að missa hana ekki.

Hvað er Svansvottun?

Svansvottun er opinbert og vel þekkt umhverfismerki á Norðurlöndunum sem er meðal annars með það markmið að lágmarka umhverfisleg áhrif á neyslu og framleiðslu vara.

Svansvottun Krónunnar þýðir að:

  • 20% af öllum rekstrarvörum sem Krónan selur eru umhverfisvottaðar (vottaðar með Svaninum eða Evrópublóminu)

  • 4% af matar- og drykkjarvöru eru lífrænt vottaðar

  • markviss áhersla er lögð á að sporna gegn matarsóun og flokkun er til fyrirmyndar

  • Virk orkustefna sem dregur úr orkunotkun

  • Krónan notar einungis umhverfisvottaðar ræsti- og hreinlætisvörur fyrir eigin þrif og rekstur

Psst… viltu vita meira um samfélagslega ábyrgð?

Við viljum hafa áhrif til góðs og sýna samfélagslega ábyrgð í verki – alltaf

Krónu karfan

© 2023

-

Krónan

-

Kt. 711298 2239

-

Skrifstofa Krónunnar

-

Sími: 585 7000

-

Fax: 559 3001

-

Dalvegur 10-14

-

201 Kópavogur