
fyrir
2
1
Undirbúningur
10 mín.
Eldunartími
Innihald:
250 g Rummo Spaghetti Grossi n° 5
10-15 kirsuberjatómatar
400 g niðursoðnir afhýddir tómatar (peeled tomatoes)
2 hvítlauksrif
Ferskur basil
Harðir rifnir ostar (parmigiano, pecorino, osfrv.)
Ferskur chili
Olía
Salt
Leiðbeiningar
Skerið kirsuberjatómatana í tvennt og leggið til hliðar.
Kreistið niðursoðna, afhýddu tómatana (peeled tomatoes) með höndunum og blandið kvoðunni saman við safann. Leggið til hliðar.
Steikið hvítlaukinn og nokkra chilipipara á pönnu með rausnarlegri skvettu af ólífuolíu, og bætið svo við basilgrein.
Þegar hvítlaukurinn byrjar að taka lit, bætið tómatmaukinu og skornum kirsuberjatómötum út í og látið malla við vægan hita í 15 mínútur.
Á meðan, hitið vel saltað vatn í djúpum potti. Þegar vatnið byrjar að sjóða, bætið spagettíinu út í.
Rummo Spaghetti
500 gr. - 950 kr. / kg - 475 kr. stk.
Rosso Gargano t ...
400 gr. - 688 kr. / kg - 275 kr. stk.
Sólskins Tómatar
250 gr. - 2796 kr. / kg - 699 kr. stk.
Olifa Lífræn Ól ...
500 ml. - 4998 kr. / ltr - 2.499 kr. stk.
Cervati Hvítlau ...
250 gr. - 2756 kr. / kg - 689 kr. stk.
Ártangi Basilik ...
1 stk. - 619 kr. / stk - 619 kr. stk.
Eat Me Rauður Chili
105 gr. - 4229 kr. / kg - 296 kr. stk.
Ambrosi Pecorin ...
200 gr. - 6995 kr. / kg - 1.399 kr. stk.
Ambrosi Parmigi ...
150 gr. - 5987 kr. / kg - 898 kr. stk.
Olifa Lífræn Ól ...
500 ml. - 4998 kr. / ltr - 2.499 kr. stk.
Kryddhúsið Sjáv ...
90 gr. - 5322 kr. / kg - 479 kr. stk.
Til að skoða vörur í Snjallverslun
30 mín.
Samtals:
40 mín.
Á meðan spagettíið sýður, rífið ostinn.
Takið hvítlaukinn úr sósunni og hendið, og bætið við klípu af salti. Blandið saman.
Takið pastað, þegar það er enn „al dente“, og setjið í pönnuna ásamt sósunni en passið að geyma pastavatnið.
Bætið við ausu af pastavatni í sósuna til að blanda öllum hráefnunum saman.
Lækkið undir pönnunni og bætið við handfylli af rifnum osti, blandið saman.
Haldið áfram að sjóða við vægan hita, bætið pastavatni út í eftir þörfum og leyfið pastanu að draga í sig bragðið af sósunni.
Slökkvið undir. Bætið við nokkrum basilblöðum, meiri rifnum osti og smá ólífuolíu.
Berið fram með ennþá meira af rifnum osti. Buon appetito!