Manitoba pizza

fyrir

4

Eldunartími

10 mín.

Undirbúa

120 mín.

Samtals:

130 mín.

Manitoba pizza

Innihald:

Langhefuð:

500 gr. manitoba hveiti

340 gr. vatn

5 gr. þurrger

8 gr. salt

10 gr. sykur

30 gr. olía

Bakað samdægurs:

500 gr. manitoba hveiti

340 gr. vatn (volgt)

10 gr. þurrger

8 gr. salt

10 gr. sykur

30 gr. olía

Leiðbeiningar

Langhefuð:

1

Þurrefnum blandað saman í hrærivélaskál, krókurinn ( K ) sett í vélina og vatn og olía blandað rólega samanvið. Unnið í ca. 8-12 mín

2

Skiptið deiginu upp í æskilega þyngd og kúlið upp

3

Hyljið, og látið hvíla í ísskáp í ca. 2 sólarhringa

4

Takið út og látið ná stofuhita áður en deigið er flatt út

5

Fletjið út með örlítlu hveiti í höndunum eða með kökukefli og leggið á ofnskúffu með pappír

6

Veljið ykkar uppáhalds sósu, álegg og ost til að dreifa yfir botninn

7

Bakið við háan hita ( ekki undir 230-250°C ) í ca. 10-14 mínútur. Tíminn getur verið mismunandi eftir ofnum

Bakað samdægurs

1

Þurrefnum blandað saman í hrærivélaskál, krókurinn ( K ) sett í vélina og vatn og olía blandað rólega samanvið. Unnið í ca. 8-12 mín

2

Skiptið deiginu upp í æskilega þyngd og kúlið upp

3

Hyljið, og látið hvíla við stofuhita í 1-2 klst eða þar til kúlan hefur nánast tvöfaldað sig í stærð

4

Fletjið út með örlítlu hveiti í höndunum eða með kökukefli og leggið á ofnskúffu með pappír

5

Veljið ykkar uppáhalds sósu, álegg og ost til að dreifa yfir botninn

6

Bakið við háan hita ( ekki undir 230-250°C ) í ca. 10-14 mínútur. Tíminn getur verið mismunandi eftir ofnum

Vörur í uppskrift

til að skoða vörur Snjallverslunar