
11
2
Undirbúningur
10 mín.
Eldunartími
Sjóðið jasmínhrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Skerið halloumi í bita, hakkið laukinn og skerið paprikuna í strimla.
Hitið olíu á pönnu og steikið halloumi þar til osturinn er fallega gullinn á öllum hliðum. Takið af pönnunni og setjið til hliðar.
Setjið kryddin úr kryddpokanum á pönnuna og steikið stutt þar til þau fara að ilma.
Bætið lauknum og steikið í 2-3 mínútur og bætið svo currymaukinu úr pakkanum út á og steikið í 2-3 mínútur í viðbót og hrærið á mðean. Bætið paprikunni út á síðustu mínútuna.
Bætið kókosmjólkinni úr pakkanum út á og látið malla við vægan hita.
Smakkið til með limesafa. Bætið steikta halloumiostinum út í alveg í lokin.
Toppið með sneiddum vorlauk, fersku kóríander og lime. Berið fram með jasmínhrísgrjónum.
20 mín.
Samtals:
30 mín.