Frysting vöruverðs
Krónan hefur fryst almennt söluverð á 647 vörum undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Verð þeirra hækkar ekki frá 24. september til og með 31. desember 2026.
Hvaða vörur falla undir?
Frystingin nær til fjölbreyttra vara fyrir daglegt líf heimilanna. Þar má meðal annars finna kjúklingabringur, hakk, beikon, brauð, kartöflur, pasta, haframjöl, kaffi og lífrænar vörur.
Hún nær einnig til nauðsynjavara á borð við eldhúsrúllur, salernispappír, uppþvotta- og þvottaefni, hreinlætisvörur og gæludýrafóður.
Vörurnar eru seldar undir vörumerkjunum:
Krónan*
First Price
Gestus
* Vörur í kjötborði Krónunnar falla ekki undir frystingu.
Frystingin nær til vara undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus; allt frá kjúklingi, hakki og brauði yfir í kaffi, pasta, salernispappír og þvottaefni.
Verð þessara vara mun ekki hækka til og með 31. desember. Skapist hins vegar svigrúm til verðlækkana munum við skila þeim ávinningi áfram til viðskiptavina.
Með þessu viljum við sýna ábyrgð í verki, styðja við heimilin og leggja okkar af mörkum til að lækka verðbólgu og auka stöðugleika.
Nær verðfrystingin til alls vöruúrvals Krónunnar?
Nei. Frystingin nær til 647 vöruliða undir framangreindum vörumerkjum. Aðrar vörur í vöruúrvali Krónunnar falla ekki undir þessa tilteknu verðfrystingu.
Af hverju voru þessar vörur valdar?
Krónan hefur meiri yfirsýn og stjórn á verðlagningu þessara vörumerkja. Vörurnar spanna alla helstu vöruflokka og margar þeirra eru meðal ódýrustu valkostanna í sínum flokki. Frystingin getur því skipt heimilin raunverulegu máli í daglegum innkaupum.
Gildir verðfrystingin í öllum verslunum?
Já. Verðfrystingin gildir í öllum verslunum Krónunnar og í Snjallverslun.
Við hvaða verð er miðað?
Miðað er við almennt söluverð varanna 23. september 2026. Ef vara var á tímabundnu tilboði þann dag miðast frystingin við almennt söluverð hennar en ekki tímabundið tilboðsverð.
Getur verð lækkað á tímabilinu?
Já. Verðfrystingin kemur ekki í veg fyrir verðlækkanir. Komi til lækkunar innkaupsverðs eða gengisstyrkingar mun Krónan skila þeim ávinningi áfram til viðskiptavina.
Verða áfram tilboð á þessum vörum?
Já. Krónan mun áfram geta boðið tímabundin tilboð og önnur verðkjör. Þegar tilboði lýkur getur verð vörunnar farið aftur í almennt fryst verð en ekki hærra en viðmiðunarverðið frá 23. september.
Hvað gerist ef kostnaður Krónunnar hækkar?
Ef innkaupsverð, flutningskostnaður eða aðrir kostnaðarliðir hækka á tímabilinu mun Krónan taka þá hækkun á sig í stað þess að velta henni út í verð þessara vara til viðskiptavina.
Krónan mun jafnframt eiga samtal við birgja og kalla eftir sambærilegu aðhaldi.
Geta vörur sem falla undir frystinguna horfið úr úrvali?
Vöruúrval Krónunnar er í stöðugri þróun og getur tekið breytingum vegna framboðs, eftirspurnar og viðskiptakjara. Markmiðið er áfram að tryggja gott aðgengi að fjölbreyttum vörum á hagstæðu verði.
Hvað með nýjar vörur undir þessum vörumerkjum
Verðfrystingin nær til þeirra vöruliða sem voru í úrvali Krónunnar á viðmiðunardeginum 23. september. Nýjar vörur sem koma síðar í sölu hafa ekki eldra söluverð sem hægt er að frysta og verða verðlagðar samkvæmt almennri verðstefnu Krónunnar.
Af hverju tekur Krónan þetta skref?
Þótt matvara sé ekki helsti drifkraftur verðbólgunnar um þessar mundir vill Krónan leggja sitt af mörkum til áframhaldandi hjöðnunar verðbólgu, aukins stöðugleika og minni kostnaðarþrýstings á heimilin.
Matarinnkaup vega þungt í útgjöldum heimilanna og með verðfrystingunni vill Krónan veita viðskiptavinum aukinn fyrirsjáanleika út árið.
Hefur Krónan áður fryst verð?
Já. Árið 2022 frysti Krónan verð á 240 vörum undir vörumerkjum Krónunnar og First Price. Nú nær aðgerðin til 647 vöruliða undir merkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestu
Hversu lengi gildir verðfrystingin?
Verðfrystingin tekur gildi 24. september og stendur til og með 31. desember 2026.
Hvert get ég leitað ef ég tel að verð hafi hækkað?
Viðskiptavinir geta haft samband við þjónustuver Krónunnar í gegnum kronan.is. Við skoðum allar ábendingar og leiðréttum möguleg mistök eins fljótt og auðið er.
Opnunartímar
Gjafakort
Um okkur
Sækja um starf
Hafa samband
Skrá á póstlista
Leita að kvittun
Tilkynningar- og uppljóstrunargátt
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
