Vara merkt ódýr er ódýrasta varan í viðkomandi vöruflokki og er á sambærilegu verði og í næstu lágvöruverðsverslun. Þú getur tekið upplýsta ákvörðun um hvort þú vilt gera þessi góðu kaup, eða splæsa í eitthvað aðeins dýrara, svona í tilefni dagsins!
Stundum vill maður splæsa en það er svo gott að spara! Hér eru nokkur snilldar sparnaðarráð:
Skrifaðu lista áður en þú ferð í búðina. Þú getur líka búið til lista í Snjallverslun á vefnum eða í appinu.
Fáðu þér snarl fyrir búðarferðina! Að vera svangur í búðarferð býður upp á að ýmsir óvæntir hlutir endi í körfunni.
Vissir þú að þú ert með verðskanna í vasanum? ...í Krónuappinu 😉.
Obbobbobb! Ekki henda afgöngum. Afganga má vel nýta í hádegismat eða nasl.
Mundu eftir fjölnotapokanum … ódýrara og betra fyrir umhverfið.
Gerðu vikumatseðil.
Kíktu á ávaxtamarkaðinn, þar finnur þú ódýrt bland í poka.