Krónan er fjölbreyttur vinnustaður fyrir fólk með alls konar hæfileika. Hvort sem þú ert liðtækur lagerstarfsmaður, skjótari en skugginn að stimpla þig inn í sjálfsafgreiðslukassa með bros á vör eða skrifstofutýpa sem er algjör Excel-hvíslari, þá viljum við heyra frá þér!
Við viljum vera til fyrirmyndar
Markmið Krónunnar er að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem áhersla er lögð á þjálfun, jafnrétti, heilsu og öryggi starfsfólks.
Við vöndum okkur mikið við að vera góður vinnustaður. Við erum stolt af því hver við erum og okkur finnst hversdagurinn í öllum sínum fjölbreytileika alveg frábær! Við leggjum áherslu á að styðja við starfsfólkið okkar þegar kemur að því að ná árangri í starfi, gerum okkur far um að vera sanngjörn og gerum okkar besta til að tryggja jafnrétti, öryggi og persónuvernd fólksins okkar.
Almenn umsókn
26 verslanir um land allt
Langar þig að taka þátt í að móta matvöruverslun framtíðarinnar? Hjá Krónunni starfar fjölbreyttur hópur fólks og við leggjum mikið upp úr því að skapa góðan og framúrskarandi vinnustað.
Sækja um starfið
Vaktstjóri
26 verslanir um land allt
Krónan leitar að öflugu starfsfólki í starf vaktstjóra. Verkefni vaktstjóra eru að aðstoða og styðja við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.
Sækja um starfið
Sumarstörf hjá Krónunni!
26 verslanir um land allt
Langar þig að slást í hópinn í sumar? Hjá Krónunni starfar fjölbreyttur hópur fólks og við leggjum mikið upp úr því að skapa góðan og framúrskarandi vinnustað. Við erum að ráða í sumarstörf og leitum að jákvæðu, drífandi og þjónustulipru fólki sem vill læra, vaxa og hafa gaman í vinnunni.
Sækja um starfið
Þjónustufulltrúi hjá Krónunni
Dalvegur 10-12
Krónan leitar að þjónustufulltrúa (75-100% eftir samkomulagi) sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu og upplifun viðskiptavina. Hefur jafnframt sterka söluhæfni, getur nálgast fyrirtæki og kynnt snjöllu lausnir Krónunnar af öryggi og fagmennsku.
Sækja um starfið
Stjórnandi
Krónan
Verkefni stjórnanda í verslun er að stýra daglegum rekstri verslunarinnar og vera hvetjandi leiðtogi í hópi starfsfólks til að ná saman settum markmiðum.
Sækja um starfið
Við leggjum okkur ávallt fram við að ráða til starfa hæft fólk sem hefur metnað til að ná árangri í starfi. Við stöndum faglega að ráðningum í samræmi við jafnréttisstefnu og hæfnikröfur starfanna.
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
