Jafnlaunastefna

Jafnlaunastefna Krónunnar er launastefna og gildir fyrir allt starfsfólk.

Jafnlaunastefnan er til að gæta jafnréttis í launaákvörðunum til að starfsfólk hafi jöfn laun fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf óháð kynjum. Hún er einnig órjúfanlegur hluti af jafnréttisstefnu.

  • Starfrækt er jafnlaunakerfi í samræmi við jafnlaunastaðli ÍST 85, ásamt lagalegum og öðrum skilgreindum kröfum.

  • Jafnlaunaviðmið ákveða launabil fyrir skilgreint starf, þau eru málefnaleg og fela hvorki í sér beina né óbeina mismunun.

  • Allar launaákvarðanir skulu vera gegnsæjar, málefnalegar, skjalfestar og rekjanlegar.

  • Jafnlaunastefna og -markmið er rýnd árlega í rýni stjórnenda.

Framkvæmdastjóri og stjórnendur Krónunnar bera ábygð á að stefnunni sé framfylgt. Mannauðsstjóri hefur eftirlit með og ber ábyrgð á stöðugum úrbótum og að jafnlaunastaðli sé framfylgt.

Krónu karfan

© 2024

-

Krónan

-

Kt. 711298 2239

-

Skrifstofa Krónunnar

-

Sími: 585 7000

-

Dalvegur 10-14

-

201 Kópavogur