
fyrir
8
34
Undirbúa
30 mín.
Eldunartími
Innihald:
Kakan
4-5 græn epli, afhýdd og skorin í grófa bita
200 ml eplasafi
2 tsk. maíssterkja
250 g hveiti
100 g smjör, mjúkt
50 g flórsykur
4 egg
150 g sykur
1 kg hreint skyr
200 ml rjómi
Karamellukrem
2 ½ dl sykur
½ dl vatn
1 ½ dl rjómi
1 tsk. sjávarsalt
50 g smjör
1 tsk. vanilludropar
Leiðbeiningar
Í samstarfi við Gestgjafann
Kakan
Hitið ofninn í 180°C.
Setjið eplabita og eplasafa í pott og hitið að suðu.
Bætið maíssterkju saman við og hrærið í nokkrar mínútur þar til blandan þykknar aðeins.
Takið af hitanum.
Hrærið saman hveiti, smjöri, flórsykri og einu eggi með sleif eða í hrærivél.
Epli Greenstar
280 gr. - 367 kr. / kg - 99 kr. stk.
Innocent Eplasafi
900 ml. - 589 kr. / ltr - 530 kr. stk.
Maizena Maíssterkja
400 gr. - 1448 kr. / kg - 579 kr. stk.
Grön Balance Hveiti
1 kg. - 233 kr. / kg - 233 kr. stk.
Ms Smjör 250gr
250 gr. - 1856 kr. / kg - 464 kr. stk.
Dds Flórsykur
500 gr. - 398 kr. / kg - 199 kr. stk.
Nesbú Hamingjue ...
408 gr. - 1272 kr. / kg - 519 kr. stk.
First Price Sykur
1 kg. - 188 kr. / kg - 188 kr. stk.
Ísey Skyr Hreint 1kg
1 ltr. - 646 kr. / ltr - 646 kr. stk.
Ms Rjómi 500 Ml
500 ml. - 1552 kr. / ltr - 776 kr. stk.
Kötlu Vanilludropar
1 stk. - 180 kr. / stk - 180 kr. stk.
Til að skoða vörur í Snjallverslun
90 mín.
Samtals:
120 mín.
Kælið deigið í 30 mínútur.
Þrýstið deiginu síðan ofan í laus botna form (um 23 cm) og látið það ná aðeins upp á brúnirnar.
Blandið saman sykri, skyri, 3 eggjum og rjóma í skál þar til blandan er jöfn og slétt.
Hellið eplablöndunni yfir botninn og síðan skyrblöndunni yfir.
Bakið í 50-60 mínútur.
Þegar kakan hefur alveg kólnað, losið úr forminu og hellið karamellunni yfir.
Karamellukrem
Setjið sykur og vatn í pott og hitið við meðal hita.
Þegar sykur inn fer að fá brúnan lit, bætið rjóma og salti saman við og hrærið stöðugt.
Hafið hitann vægan og hrærið þar til allt hefur samlagast.
Bætið síðan smjöri og vanillu dropum saman við og látið malla þar til karamellan verður seig fljótandi.
Takið af hitanum og látið kólna áður en hún er sett yfir kökuna.