Lasagne í potti

fyrir

0

Eldunartími

40 mín.

Undirbúa

10 mín.

Samtals:

50 mín.

Lasagne í potti

Innihald:

Lasagne

1 msk steikingarolía

1 msk smjör

4 hvítlauksgeirar

500g nautahakk (eða annað prótein)

2 tsk oreganó

2 tsk paprikukrydd

2 tsk hvítlauksduft

2 tsk laukduft

1/2 tsk chili krydd

150 ml rjómi

1 líter soðið vatn

2 kjötkrafts teningar

350 g lasagna plötur

1 dl rifinn mozzarella ostur

1 dl rifinn parmesan ostur

1/2 dl söxuð basilika

1 krukka pastasósa

Salt & pipar eftir smekk

Ricotta fylling

250g ricotta ostur

1 dl rifinn parmesan ostur

Salt & pipar eftir smekk

Leiðbeiningar

Að hætti Tinnu Þorra

1

Brjótið lasagne plöturnar og leggið til hliðar. Þær eiga það til að fara í allar áttir svo farið varlega.

2

Í pott, setjið olíu og smjör í pott og steikið hvítlaukinn þar til hann er orðinn mjúkur.

3

Bætið hakkinu við ásamt kryddunum.

4

Þegar hakkið er eldað í gegn, bætið rjómanum og kjötsoðinu - leyfið léttri suðu að koma upp.

5

Bætið lasagna plötunum við og lækkið hitann aðeins. Leyfið plötunum að sjóða í um 15 mínútur en hrærið reglulega í pottinum svo að það brenni ekki við.

6

Á þessum tíma er sniðugt að útbúa ricotta blönduna með því að blanda saman ricotta osti, parmesan osti, salti og pipar.

7

Þegar lasagna plöturnar eru orðnar eldaðar í gegn bætið mozzarella osti, parmesan osti og basiliku.

8

Berið fram í skál með ricotta fyllingunni ofan á ásamt parmesan osti og ferskri basiliku.

Vörur í uppskrift
Líklega til heima

til að skoða vörur Snjallverslunar