
fyrir
6
10
Undirbúa
60 mín.
Eldunartími
Innihald:
Hangikjöt
Hangikjöt
2 msk sykur
Uppstúf/jafningur (uppskrift hér fyrir neðan)
Kartöflur (kaupið tilbúnar eða sjóðið og flysjið)
Rauðkál (uppskrift hér fyrir neðan)
Grænar baunir
Heimagert rauðkál
Meðalstór rauðkálshaus
2 epli
75 ml hvítvínsedik
90 g sykur
30 g smjör
1 stk stjörnuanís
1 stk kanilstöng
2 lítrar vatn
Jafningur/uppstúf
40 g smjör
50 g hveiti
6 dl mjólk
U.þ.b. ¼-½ tsk salt
U.þ.b. 1 – 1½ msk sykur
¼ tsk hvítur pipar
1 dl rjómi
Leiðbeiningar
Byrjið á því að útbúa rauðkálið. Hægt er að gera það daginn áður líka.
Takið hangikjötið út úr ísskápnum og leyfið því að jafna sig í u.þ.b. 1-2 klst við stofuhita.
Setjið kalt vatn í stóran pott sem rúmar hangikjötið og setjið lærið ofan í pottinn. Gott er að bæta 2 msk sykri í pottinn.
Látið suðuna koma upp og sjóðið rólega við vægan hita í 25-30 mín fyrir hvert kíló. Slökkvið svo undir og leyfið hanikjötinu að kólna í vatninu í 2 klst með lokið á pottinum.
Kea Hangilæri ú ...
ca. 2000 gr. - 7599 kr. / kg - 15.198 kr. stk.
Dds Sykur
2000 gr. - 250 kr. / kg - 499 kr. stk.
Þykkvabæjar Gul ...
1 kg. - 549 kr. / kg - 549 kr. stk.
Ora Grænar Baunir
420 gr. - 610 kr. / kg - 256 kr. stk.
Rauðkál
1600 gr. - 228 kr. / kg - 365 kr. stk.
Epli Jonagold
270 gr. - 330 kr. / kg - 99 kr. stk.
Gestus Hvítvínsedik
250 ml. - 1436 kr. / ltr - 359 kr. stk.
Ms Smjör 250gr
250 gr. - 1856 kr. / kg - 464 kr. stk.
Pottagaldrar St ...
1 stk. - 529 kr. / stk - 529 kr. stk.
Flóru Kanilstangir
1 stk. - 245 kr. / stk - 245 kr. stk.
Kornax Hveiti
2 kg. - 175 kr. / kg - 350 kr. stk.
Ms Nýmjólk
1 ltr. - 230 kr. / ltr - 230 kr. stk.
Ms Rjómi 250 Ml
250 ml. - 1624 kr. / ltr - 406 kr. stk.
Salina Fínt Salt
1 kg. - 126 kr. / kg - 126 kr. stk.
Prima Hvítur Pi ...
45 gr. - 10089 kr. / kg - 454 kr. stk.
Til að skoða vörur í Snjallverslun
120 mín.
Samtals:
180 mín.
Á meðan kjötið er að kólna, útbúið þá uppstúfinn og sjóðið kartöflurnar.
Heimagert rauðkál
Skerið rauðkálshausinn smátt niður, takið kjarnann frá.
Flysjið og kjarnhreinsið eplin, skerið þau niður í litla bita.
Setjið í stóran pott ásamt hvítvínsediki, sykri, smjöri, stjörnuanís, 4 kanilstöng og hellið svo vatninu yfir.
Sjóðið í u.þ.b. 1 ½ klst við vægan hita, smakkið eftir u.þ.b. 45 mín og setjið ef til vill meira af sykri eða ediki eftir því hvort ykkur finnst vanta.
Veiðið kanilstöngina og anísstjörnuna upp úr rauðkálinu og notið það jafnvel sem skraut ofan á rauðkálið þegar það er borið fram.
Jafningur/uppstúf
Ef þið eruð ekki með forsoðnar kartöflur, þá byrjiði á að sjóða þær og flysja.
Bræðið smjör í potti og bætið hveitinu út á, hrærið saman þar til það myndast kúla sem lyftist frá pottinum.
Bætið mjólkinni út í pottinn, u.þ.b. ½ dl í einu og hrærið þar til bollan hefur dregið alla mjólkina í sig, bætið þá öðrum ½ dl út í og hrærið aftur. Endurtakið fyrir restina af mjólkinni. Hrærið stöðugt í á meðan og passið að hafa alltaf vægan hita undir pottinum þar sem þetta getur brunnið auðveldlega við.
Sjóðið saman í nokkrar mínútur, bætið rjómanum út í og kryddið til eftir smekk með sykri, salti og hvítum pipar.
Bætið forsoðnum og flysjuðum kartöflum út í og blandið saman.