Viltu læra að nýta þér Krónuappið?
Mánudaginn 23. mars kl. 16:30 verður stutt fræðsluerindi fyrir eldra fólk sem vill læra á Snjallverslun (panta heim, skanna & skunda eða sækja pantanir í verslun). Um er að ræða tilraunaverkefni hjá okkur í Krónunni.
Eldri kynslóðir vilja halda í sjálfstæði og við viljum byggja þá brú, m.a. með aukinni fræðslu. 🫶
Fræðslan verður á skrifstofu Krónunnar, Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - mánudaginn 23. mars kl. 16:30.
Æskilegt er að þátttakendur hafi snjalltæki með sér (snjallsímann eða spjaldtölvu)
Þátttakendur séu með greiðslukort, eða númer, til að skrá í appið við uppsetningu. Alls ekki krafa, en hjálpar til með uppsetningu og að nota appið síðar meir.
Þátttakendur fá gjafapoka frá Krónunni
Ath. takmarkaður fjöldi, fyrstur kemur fyrstur fær!
Skráning hér að neðan 👇
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
