Skólahreysti
Skólahreysti er hreystikeppni grunnskólabarna í 9. og 10. bekk sem hefur verið sýnd á RÚV ár hvert. Markmið keppninnar er að hvetja börn til almennrar hreyfingar og þátttöku í íþróttum þar sem keppendur reyna að mestu á eigin líkamsþyngd í fjölbreyttum þrautum.
Krónan er samstarfsaðili Skólahreystis og miðar að því að styrkja enn frekar hreyfingu og hollt mataræði meðal barna og ungmenna, auk þess að styðja við framkvæmd og þróun keppninnar. Samstarfið markar jafnframt aukna áherslu á bæði hreyfingu og mataræði í starfi Skólahreysti.
Skólahreysti er keppni sem Krónan trúir á því hún er opin öllum og ekki þarf að æfa ákveðna íþrótt til að taka þátt, en það rímar vel við okkar sýn á lýðheilsu.
© 2026 - Krónan
Kt. 711298 2239
Skrifstofa Krónunnar
Sími: 585 7000
Dalvegur 10-14
201 Kópavogur
kronan@kronan.is
