Jólastjarna með appelsínusúkkulaðifyllingu

fyrir

8

Uppáhalds

Eldunartími

60 mín.

Undirbúa

60 mín.

Samtals:

120 mín.

Jólastjarna með appelsínusúkkulaðifyllingu

Innihald:

5 dl plöntumjólk

100 gr smjörlíki

1 pakki þurrger

1 1/2 dl sykur

1 tsk kardimommudropar

10-12 dl hveiti

Fylling:

150 gr smjörlíki eða vegan smjör

1 dl púðursykur

1 msk flórsykur

2 msk kakó

Appelsínubörkur af einni appelsínu

Appelsínusafi úr hálfri appelsínu

2 plötur niðursaxað appelsínusúkkulaði

Leiðbeiningar

1

Bræðið smjörlíki í potti við lágan hita og bætið mjólkinni út í þegar það er alveg bráðnað. Hellið mjólkurblöndunni í skál og leyfið henni að kólna ef hún er of heit en hún á að vera sirka við líkamshita (37°C). Okkur finnst best að nota fingurinn til að mæla hitan en þegar við finnum ekki fyrir hitabreytingu er hitastigið rétt.

2

Stráið þurrgeri yfir mjólkina og einni teskeið af sykri og leyfið þessu að standa í 10 mínútur.

3

Bætið restinni af hráefnunum út í og hnoðið saman. Hnoðið deigið í dágóða stund annað hvort í höndunum eða í hrærivél. Deigið á að vera frekar blautt en samt auðvelt að meðhöndla með hreinum höndum án þess að það klessist. Í hrærivél losnar það frá skálinni þegar það hefur náð réttri áferð.

4

Leyfið deiginu að hefast í skál með hreinu viskustykki yfir í allavega klukkustund áður en það er flatt út.

5

Skiptið deiginu í fjórar jafn stórar kúlur.

6

Fletjið hverja kúlu út í hring sem er aðeins stærri í stór matardiskur. Notið matardisk til að skera út fullkomin hring úr hverjum bita af deigi.

7

Skiptið fyllingunna í þrjár jafnstóra hluta. Byrjið á því að smyrja einum hluta af fyllingu á einn deighring og strá söxuðu appelsínusúkkulaði yfir, setjið síðan annan deighring ofan á, smyrjið fyllingu þar yfir og stráið appelsínusúkkulaði yfir, setjið síðan þriðja deighringinn yfir og smyrjið síðasta hlutanum af fyllingu yfir ásamt söxuðu appelsínusúkkulaði áður en þið setjið síðasta hringin af deigi efst.

8

Leggið glas eða kringlótt piparkökuform á mitt deigið og skerið deigið í 16 hluta út frá hringnum í miðjunni. Það er best að gera með því að skera fyrst frá miðjunni í 4 hluta. Skera síðan hvern part í helming og síðan aftur í helming. Þannig að lokum eru þetta 16 lengjur.

9

Takið í tvo hluta í einu og snúið þeim í tvo hringi frá hvorum öðrum og festið endana síðan vel saman.

10

Pennslið stjörnuna með haframjólk

11

Bakið við 180°C í 35 til 40 mínútur eða þar til stjarnan er fallega gyllt að ofan.

12

Blandið saman 1 dl af vatni og 1 dl af sykri í skál og hrærið þar til sykurinn er uppleystur.

13

Takið stjörnuna út og penslið með sykurblöndunni um leið. Leyfið henni síðan að kólna aðeins áður en hún er borin fram.

14

Stráið yfir flórsykri (Má sleppa)

lling:

1

Blandið öllu nema appelsínusúkkulaðinu saman í skál.

2

Saxið appelsínusúkkulaðið niður og setjið í aðra skál.

Vörur í uppskrift
1
Alpro Möndlumjó ...

Búið í bili

Alpro Möndlumjó ...

1 ltr.  - 459 kr. Stk.

1
Naturli Øko Smørbar

Naturli Øko Smørbar

200 gr.  - 370 kr. Stk.

1
Gestus þurrger

Gestus þurrger

1 stk.  - 50 kr. Stk.

1
DDS sykur

DDS sykur

2000 gr.  - 519 kr. Stk.

1
Kötlu kardimomm ...

Kötlu kardimomm ...

1 stk.  - 326 kr. Stk.

1
First Price hveiti

First Price hveiti

2 kg.  - 299 kr. Stk.

1
DDS púðursykur

DDS púðursykur

500 gr.  - 230 kr. Stk.

1
DDS flórsykur

DDS flórsykur

500 gr.  - 218 kr. Stk.

1
Gestus kakó

Gestus kakó

250 gr.  - 455 kr. Stk.

1
Appelsínur

Appelsínur

320 gr.  - 115 kr. Stk.

1
Nói Siríus kons ...

Hætt

Nói Siríus kons ...

200 gr.  - 476 kr. Stk.

Vörur

()

Samtals:

2.582 kr.
Krónu karfan

© 2024

-

Krónan

-

Kt. 711298 2239

-

Skrifstofa Krónunnar

-

Sími: 585 7000

-

Dalvegur 10-14

-

201 Kópavogur