Ódýrt
Þetta gula merki sparar þér krónurnar. Ef vara er merkt ódýr þýðir það að þetta sé ódýrasta varan í þessum vöruflokki og hún er á sambærilegu verði og í næstu lágvöruverðsverslun.
Íslenskt
Ef vara er merkt með íslenska fánanum þýðir það að upprunaland vörunnar er Ísland.
Lífrænt vottað
Lífræn ræktun eða lífrænn búskapur er sérstakt form landbúnaðar sem leggur sterkar áherslur á umhverfisvernd og dýravelferð.
Vegan
Allar vörur merktar með vegan merkinu eru án allra dýraafurða. Prófaðu að taka vegan skrefin.
Án glútens
Glúten er prótín í ákveðnum korntegundum eins og hveiti, byggi, rúgi og spelti. Glúten hentar ekki öllum og þetta merki einfaldar þér að finna þær vörur í verslun.
Án mjólkursykurs
Sumir eiga erfitt með að brjóta niður mjólkursykur (laktósa). Í laktósafríum mjólkurvörum er búið að kljúfa mjólkursykurinn.
Án viðbætts sykurs
Í vörum með þessa merkingu er enginn viðbættur sykur.
Svansvottað
Svansmerkið tryggir að vottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Allur lífsferill vöru eru skoðaður og helstu umhverfisþættir skilgreindir.
Evrópublómið
Evrópublómið er umhverfismerki sem hægt er að treysta og auðveldar það neytendum að velja vörur sem fara betur með umhverfið og heilsuna. Í vottunarferlinu er allur lífsferill vöru metinn.
Skráargatið
Vörur sem bera merkið eru hollari en aðrar vörur í sama flokki sem ekki uppfylla skilyrði til að bera merkið.
Fairtrade
Á hilluverðmiðum má finna Fairtrade merki, eða Sanngirnisvottunar merki, sem staðfestir að vara sé unnin á siðferðislegan og sanngjarnan hátt. Markmiðið er að vekja áhuga almennings á sanngjörnum viðskiptum.
Ketóvænt
Ertu á ketó? Ketó mataræðið snýst um að velja sér vörur sem eru fitumiklar, prótein ríkar og lágar í kolvetni. Þetta merki hjálpar þér að finna þær.
Tannvænt
Tannmerkið á aðeins við um drykki sem innihalda ekki lægra en 5.5pH gildi sýrustigs og teljast því betri fyrir tennurnar. Mundu að bursta tennurnar.
Hnetulaust
Hjúkket, þetta er hnetulaust! Hnetur geta verið ofnæmisvaldur hjá sumum. Vörur með þetta merki eru hnetulausar.
Án eggja
Engin egg hér. Þetta merki hjálpar þér að finna vörur sem eru án eggja.