Matarbúr á Granda
Við viljum efla íslenska matvælaframleiðendur. Þess vegna valdi Krónan að fara í samstarf við Samtök smáframleiðenda matvæla og stillt vörum smáframleiðenda sérstaklega fram í verslun Krónunnar á Granda.
Við viljum tryggja sýnileika fyrir allar þær frábæru vörur sem íslenskir matvælaframleiðendur eru að þróa, þannig tryggjum við saman fjölbreytni í íslensku vöruúrvali.
Hver smáframleiðandi er með sína vöru í átta vikur í senn í búðinni og í nóvember koma svo nýjar vörur – frá nýjum framleiðendum.
Psst… Hér má sjá brot af vöruúrvalinu sem er í boði fram í nóvember.

Birt: 18. september, 2020