Hollir og næringaríkir réttir frá Ebbu
Snarlað af hjartans lyst!
Snarlið er eitt af samfélagsverkefnum Krónunnar. Markmið Snarlsins er að vekja áhuga hjá krökkum á fjölbreyttari og hollari fæðu. Engin önnur en ástríðukokkurinn og frumkvöðullinn Ebba Guðný var fengin til að leiða Snarlteymið og kennir hún börnum og unglingum einfaldar og fjölbreyttar uppskriftir á ókeypis matreiðslunámskeiðum Snarlsins í boði Krónunnar.
Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda og nú þegar hafa um 400 krakkar sótt matreiðslunámskeið Snarlsins.
Á heimasíðunni Snarlid.is er að finna fjöldann allan af stuttum matreiðslumyndböndum fyrir börn, unglinga og alla sem eru að taka sín fyrstu skref í eldhúsinu. Í myndböndunum sýnir Ebba Guðný skemmtilegar uppskriftir og gefur góð ráð!
Hægt er að kynna sér myndböndin á heimasíðunni www.snarlid.is