12 milljónir í styrki

Krónan er stór þáttur í íslensku samfélagi. Við gerum okkur grein fyrir að í krafti stærðar okkar getum við haft áhrif til góðs og þess vegna leitum við sífellt leiða til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki.
Krónan styrkir þau verkefni sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu samfélagsins í nærsamfélagi Krónunnar. Í ár úthlutuðum við sex milljónum króna úr samfélagssjóði okkar og sex milljónum til góðgerðarsamtaka sem sjá um matarúhlutanir fyrir jólin í þeim bæjarfélögum sem Krónan er í:
Við þökkum kærlega fyrir allar umsóknirnar um styrki sem okkur bárust í ár. Verkefnin sem hlutu styrk í ár eru þessi:
Samfélagsstyrkir:
- FRAM í Reykjavík, fyrir knattspyrnudeild barna
- Stjarnan í Garðabæ, fyrir handknattleiksdeild barna
- HK í Kópavogi, fyrir Krónumót yngri flokka karla og kvenna í knattspyrnu
- Íþróttabandalag Akraness, fyrir tæki, tól og orku á Umhverfisdegi Akraness
- Golfklúbburinn Leynir á Akranesi, fyrir sumarnámskeið barna
- Brettafélag Hafnarfjarðar, fyrir hjólabretti til láns
- Foreldrafélag Áslandsskóla í Hafnarfirði, fyrir panna[MOU1] fótboltavelli hjá Áslandsskóla
- Skeiðvangur á Hvolsvelli, fyrir hestanámskeið fyrir börn
- Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli, fyrir aðfangakostnað hátíðarinnar
- Fræðslunefnd fatlaðra í Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ, fyrir reiðnámskeið fatlaðra og hreyfihamlaðra
- Helgafellsskóli í Mosfellsbæ, fyrir skynörvunarherbergi (e. Snoezelen)
- Afturelding í Mosfellsbæ, fyrir úthlutun endurskinsmerkja til grunnskólanemenda í bænum
- Skógræktarfélag Reyðarfjarðar, fyrir trjákurli sem nýtist í stígagerð
- Skemmtifélag Stöðvarfjarðar, fyrir Frisbí golfvelli
- Soroptimistaklúbbur Keflavíkur, fyrir fyrirlesurum á sjálfstyrkingarnámskeið stúlkna
- Sundráð ÍRB í Reykjanesbæ, fyrir æfingabúnaði
- Skautafélag Reykjavíkur fyrir Krónumótið í íshokkídeild barna
- Körfuknattleiksdeild Hamars, á Selfossi fyrir æfingabúnaði
- Kerhólsskóli á Selfossi, fyrir námsferðum barna sem efla tengsl nemenda við nærsamfélag sitt
- ÍBV í Vestmannaeyjum, fyrir handboltanámskeið barna
- Ægir í Þorlákshöfn, fyrir knattspyrnudeild barna
- Skógræktarfélag Rangæinga, á Hellu fyrir leiktækjum við göngustíg í Bolholtsskógi
- Tónsmiðjan á Klaustri, fyrir tómstundaiðkun barna og unglinga
- Björgunarsveitin Víkverji í Vík, fyrir uppbyggingu
Jólastyrkir:
- Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
- Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
- Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
- Mæðrastyrksnefnd Akraness
- Hjálpræðisherinn
- Jólasjóður Fjarðarbyggðar
- Hjálparstarf Kirkjunnar
- Selfosskirkja
- Landakirkja í Vestmannaeyjum
- Velferðarsvið Reykjanesbæjar
- Soroptimistafélag Mosfellsbæjar
- Víkurkirkja
- Stórólfshvolskirkja
Birt: 17. nóvember, 2020