Spilarar: 2 eða fleiri

Fallback alt
Verpa eggjum
Fallback alt

Verpa eggjum

Verpa eggjum

Spilarar standa í röð við vegg og skiptast á að kasta boltanum í vegginn. Sá sem kastar hoppar klofvega yfir boltann þegar hann skoppar til baka og næsti spilari grípur boltann áður en hann kastar svo sjálfur.

Spilarar: 2 eða fleiri

Yfir
Fallback alt

Yfir

Yfir

Tvö lið eru sitt hvorum megin við lítið hús eða skúr og skiptast á að kasta boltanum yfir. Ef annað liðið grípur boltann kallar það ,,Gripið!” og hleypur öðru hvorum megin við húsið til að reyna að hitta í spilara í hinu liðinu með boltanum. Takist það færist sá spilari yfir í þeirra lið. Það lið vinnur sem endar með flesta spilara. Aðeins má kasta einu sinni.

Spilarar: 2 eða fleiri

Ein króna
Merki icon af blómi

Ein króna

Ein Króna

Aðalspilari telur upp á tuttugu við stöng á meðan hinir fela sig. Síðan reynir hann að finna þá. Allir spilarar keppast um að verða fyrstir til að snert stönga. Sá sem snertir stöngina fyrst kallar annaðhvort ,,Ein króna fyrir mér, 1, 2 og 3!” eða ,,Ein króna fyrir [nafn] 1, 2 og 3!” Sá sem verður seinni til verður aðalspilari í næstu umferð.

Spilarar: 3 eða fleiri

Snú snú
Merki icon af sippubandi

Snú snú

Snú snú

Tveir spilarar snúa sippubandinu á meðan einn eða fleiri hoppa inn og út úr því.

Spilarar: 3 eða fleiri

Þyrla
Merki icon af sippubandi

Þyrla

Þyrla

Spilari snýr sippubandinu lágt eftir jörðinni og hinir hoppa þegar bandið kemur að þeim.

Spilarar: 2 eða fleiri